Brotist inn í fyrirtæki og verslun
Tvö innbrot voru tilkynnt til lögreglu í dag, annars vegar í verslun og hins vegar í fyrirtæki.
Innbrotin eru á borði lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Ekki kemur fram hvar innbrotin áttu sér stað en umdæmi lögreglustöðvarinnar nær frá Austurbæ Reykjavíkur og út á Seltjarnarnes.
Fjórir gistu í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fimmta tímanum. Tveir voru vistaðir í dag vegna þjófnaðar í efri byggðum Reykjavíkur.
Þjófnaður í matvöruverslunum
Auk innbrotanna nærri miðborginni var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun í sama lögregluumdæmi.
Annað brot af sama meiði var tilkynnt hjá lögreglustöð tvö sem þjónustar Hafnfirðinga og Garðbæinga. Þar höfðu lögreglumenn afskipti af ökumanni vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna.
Í Kópavogi var einn kærður fyrir að aka gegn rauðu ljósi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗