Svipuð mynstur í árásunum

Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, segir að staðan verði metin á næstu dögum. Samsett mynd/Ljósmynd/Aðsend/Colorbox

Fjöldi tilrauna hefur verið gerður til að komast inn í íslensk tölvukerfi að undanförnu og hefur netógn farið vaxandi síðustu vikur. Tvær alvarlegar netárásir á Reykjavíkurborg og Bláa lónið í dag urðu meðal annars til þess að ákveðið var að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða.

Þetta segir Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS, í samtali við mbl.is í kvöld.

„Við erum að sjá mikið af snertingum og þreifingum við kerfi á Íslandi frá sömu ógnaraðilum sem eru að reyna að komast inn í kerfin.“

Hann segir að ekki sé um einstök atvik að ræða heldur hafi ógnin farið stigvaxandi á undanförnum vikum.

Borgin og Bláa lónið urðu fyrir árásum

Reykjavíkurborg varð fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna í dag og var fjöldi rafrænna þjónustukerfa tekinn tímabundið úr sambandi til að verja kerfi og gögn borgarinnar.

Sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og CERT-IS vinna að rannsókn málsins ásamt starfsfólki borgarinnar. Gera má ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu næstu daga.

Bókunarsíður Bláa lónsins urðu einnig fyrir netárás í dag. Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri fyrirtækisins sagði fyrr í kvöld að brugðist hefði verið hratt við árásinni og að hún hefði haft áhrif á mjög fáa viðskiptavini.

Magni segir að ákveðin líkindi séu með netöryggisatvikunum tveimur.

„Við sjáum svona svipað mynstur í báðum atvikum,“ segir hann.

Hann tekur þó fram að ákvörðunin um að lýsa yfir óvissustigi byggist ekki eingöngu á þessum tveimur árásum heldur einnig á þeirri stigmögnun sem orðið hefur síðustu vikur.

Staðan endurmetin á morgun

Samkvæmt tilkynningu almannavarna og CERT-IS hefur aukin notkun gervigreindar í netárásum á Íslandi og í nágrannalöndum aukið ógnina við mikilvæga upplýsingainnviði.

Óvissustigið felur í sér aukna vöktun og samráð við rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu.

Magni segir að unnið hafi verið að því í kvöld að safna upplýsingum frá fyrirtækjum, stofnunum og rekstraraðilum mikilvægra innviða til að fá skýrari heildarmynd af stöðunni.

Tilgangurinn með virkjun viðbragðsáætlunarinnar sé að tryggja að þessir aðilar séu á varðbergi, fylgist vel með kerfum sínum og séu tilbúnir að bregðast við.

Hann segir að staðan verði endurmetin á morgun og næstu daga en óvissustigið kunni að vara áfram meðan fylgst er með þróun mála.

Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að yfirfara öryggisvarnir sínar, aðgangsstýringar og tengingar við þriðju aðila og tilkynna grunsamleg atvik til CERT-IS.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab