Héldu 76 gíslum daglangt í vinsælli ferðamannaborg
Abelardo de la Espriella ræðir við tvo meinta mannræningja að sögn kólumbískra yfirvalda. Þaðan er myndefnið komið. AFP
Lögreglan í Kólumbíu segir 76 gísla hafa verið tekna þegar menn, vopnaðir byssum, héldu þeim nauðugum í stórmarkaði í gær og í dag.
Fólki var haldið nauðugu í 17 klukkustundir og mikil lögregluviðvera var umhverfis stórmarkaðinn í Cartagena.
Sérsveitarmenn lögreglu og hersins réðust inn og frelsuðu gíslana í dag. Þeir skutu á ódæðismennina og drápu einn þeirra. Heimildarmaður AFP segir þá hafa verið þrjá talsins.
Yfirvöld í Kólumbíu segja hina grunuðu fyrst hafa reynt að ræna brynvörðum bíl í verslunarmiðstöðinni þar sem stórmarkaðinn er að finna.
Vinsælt stopp hjá skemmtiferðaskipum
Cartagena er ein vinsælasta ferðamannaborg Kólumbíu. Mörg skemmtiferðaskip koma þar við og borgin er þekkt fyrir sögulegan miðbæ, sjóræningjasögu og góðar strandir.
Á meðan á þessu stóð mátti sjá forseta Kólumbíu, Abelardo de la Espriella, í herklæðum á vettvangi með talstöð í hendi. Forsetinn sagði lögregluaðgerðina hafa verið mjög árangursríka.
Hann útilokaði að pólitískir uppreisnarmenn eða málaliðar hefðu verið að verki.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

