Skýrir hví Jökull var svo langt frá landi
Innlent | mbl | 25.11.2026 | 23:44
Fiskiskipið Jökull ÞH, sem sökk úti fyrir Austurlandi síðdegis í dag, var við grálúðuveiðar þegar neyðarástand skapaðist. Skýrir það hversu langt skipið var frá landi.
Grálúða er djúpsjávarfiskur sem heldur sig meðal annars á djúpmiðum við landgrunnsbrúnina og utan hennar. Sækja fiskiskip því gjarnan langt frá landi til veiða á grálúðu.
Mikil fjarlægð frá landi hefur haft áhrif á viðbragðstíma björgunaraðila. Um þrjár klukkustundir liðu frá því að skipstjóri Jökuls sendi neyðarkall þar til eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á slysstað laust eftir klukkan 21, um fjórum klukkustundum eftir að neyðarkallið barst. Fiskiskip sem stödd voru á miðunum voru jafnframt kölluð til aðstoðar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗