Aðgerðum Gæslunnar lokið: Ekki unnt að greina frá líðan
Innlent | mbl | 25.11.2026 | 23:20 | Uppfært 23:50
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar um sextíu sjómílur austur af landinu, þar sem íslenska fiskiskipið Jökull ÞH299 sökk, er lokið.
Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.
Áhöfn skipsins hafi verið hífð um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og þyrlan fljúgi með hana til Egilsstaða.
Ekki sé unnt að greina nánar frá líðan þeirra að svo stöddu og ekki verði veittar frekari upplýsingar í bili.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗