1984 telja líklegt að netárásin sé af hálfu þjóðríkis
Nethýsingarfyrirtækið 1984 segir árásina á þeirra kerfi virðast hafa verið upphafið að mun umfangsmeiri netárás.
Hún beri öll merki þess að hafa verið framkvæmd af hálfu erlends þjóðríkis og beini spjótum sínum að íslenska ríkinu og stafrænum innviðum þess.
Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu 1984 sem er á ensku. Nethýsillinn varð fyrir netárásum fyrir fáeinum dögum en í dag hafa íslensk fyrirtæki og stofnanir orðið fyrir slíkum árásum.
Beri öll merki árásar af hendi þjóðríkis
1984 bendir á að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafi í dag ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum á Íslandi og löndunum í kring.
Fyrirtækið segir árásirnar í dag bera öll merki þess að tölvuþrjótarnir starfi á vegum erlends þjóðríkis. Sú staðreynd að tölvuþrjótarnir hafi beint skilaboðum til CERT-IS, en ekki opinberlega eða að fyrirtækjum eða stofnunum beint, sé til marks um það.
1984 segir vefsíður sem fyrirtækið þjóni virka í dag, fyrir utan þær sjö vefsíður sem urðu fyrir árásinni. Þeir segja engin gögn hafa verið tekin frá sér.
Færslu 1984 má lesa hér að neðan.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗