Halla Tómasdóttir: „Megi allir komast heilir heim“

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sendir skipverjum fiskiskipsins Jökuls, ástvinum þeirra og björgunarfólki hlýjar kveðjur í færslu á samfélagsmiðlum í kvöld.

Eins og greint hefur verið frá sökk Jökull austur af landinu í dag en sautján skipverjar voru um borð. Umfangsmiklar björgunaraðgerðir standa yfir við afar erfiðar aðstæður á hafi úti.

„Hugur minn er hjá sjómönnunum fyrir austan, ástvinum þeirra og öllu því góða og hugrakka fólki sem vinnur nú að björgun þeirra. Á slíkum stundum slær hjarta þjóðarinnar í sama takti,“ segir forsetinn og bætir við:

„Megi allir komast heilir heim.“

Neyðarkall barst frá skipinu laust eftir klukkan 17 í dag og var þegar í stað ráðist í umfangsmiklar björgunaraðgerðir. Þyrla og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar eru komnar á vettvang auk fiskiskipa sem kölluð voru til aðstoðar. Þá hefur samhæfingarstöð almannavarna verið virkjuð.

Fylgjast má með framvindu björgunaraðgerða í frétt DV hér.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab