Andy Taylor er látinn

Andy Taylor, gítarleikari ensku sveitanna Duran Duran og Power Station, er látinn, 65 ára að aldri. Hann lést af völdum blöðruhálskrabbameins síðastliðinn mánudag á heimili sínu.

Duran Duran var stofnuð í Birmingham á Bretlandi árið 1978 af Nick Rhodes, John Taylor og Stephen Duddy. Andy gekk til liðs við sveitina tveimur árum síðar ásamt Roger Taylor og Simon Le Bon. Duffy hafði þá yfirgefið sveitina.

Andy samdi og spilaði með sveitinni á hátindi frægðar hennar þegar hún gaf út lög eins og Hungry Like the Wolf, Rio, Girls on Film og The Reflex, auk titillags Bond-myndarinnar A View to a Kill árið 1985.

Leiðir Andy og Duran Duran skildu árið 1986 og gekk hann þá til liðs við Power Station. Á ferli sínum spilaði hann fjölda tónlistarmanna þar á meðal Robert Palmer, Rod Stewart og Belinda Carlisle.

Fjölskylda Andy og Duran Duran gáfu út sameiginlega yfirlýsingu um andlát hans.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab