„Hefði verið heppilegra að hafa þyrlu nær vettvangi“
„Við förum ekkert fyrr en allt er búið og allt er orðið klárt. Við erum með flugvélina þarna úti og þyrlu og svo eru fjölmörg skip. Í því er mikill styrkur,“ segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Miðað við fjarlægð frá landi og veður og sjólag þá hefur þetta gengið vel. En þessu er ekki lokið. Við vonum það besta,“ segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, við mbl.is um björgunaraðgerðir á vettvangi þar sem Jökull sökk fyrr í dag.
„Það eru flestallir komnir um borð í þyrluna,“ segir hann. Ekki sé vitað hvort þeir séu allir heilir á húfi.
Ómögulegt sé að segja til um hvað aðgerðir standi lengi af hálfu Landhelgisgæslunnar.
„Við förum ekkert fyrr en allt er búið og allt er orðið klárt. Við erum með flugvélina þarna úti og þyrlu og svo eru fjölmörg skip. Í því er mikill styrkur.“
Sýnir alvarleika málsins
Georg segir viðveru Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð tala til alvarleika málsins.
„Þarna voru margir menn um borð við erfiðar aðstæður og það er mjög eðlilegt að ráðamenn þjóðarinnar láti sig þetta varða og er okkur mikill styrkur að þeir skuli sýna þessu áhuga.“
Útkallið barst klukkan 5 og þyrlan var komin á staðinn um klukkan 9. Er þetta ásættanlegur viðbragðstími?
„Þetta er eins langt í burtu og hægt er, ef svo má segja. Og þyrlan bara kemst ekki hraðar. Þeir þurftu að fljúga með ströndinni, það var ekki fært yfir landið. Það er illviðri á landinu þannig að þetta er bara svona eins og þetta er miðað við að þyrlan skuli vera staðsett í Reykjavík en auðvitað hefði verið heppilegra að hafa þyrlu nær vettvangi.“
Georg segir viðveru Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í samhæfingarstöðinni tala til alvarleika málsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Hífingarbúnaðurinn blessunarlega kominn í lag
Hvað komu margir að aðgerðum hjá Landhelgisgæslunni í kvöld?
„Fjölmargir. Við ræstum út varðskipið Freyju. Þar er skipsáhöfn um borð. Það eru ábyggilega svona 50, 70 manns með flugdeildinni og þeim sem starfa í stjórnstöð og björgunarmiðstöðinni.“
Nú á síðustu dögum bárust fréttir um að hífingarbúnaður um borð í þyrlunum væri bilaður. Var hann alveg kominn í lag fyrir kvöldið í kvöld?
„Já, sem betur fer var búið að leysa það mál en við vorum reyndar bara með eina þyrlu til taks.“
Þannig að það gekk allt að óskum í þeim efnum?
„Já, það gerði það.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
