Fannst látinn í Færeyjum

Fagerberg lék m.a. með Horsens í Danmörku.

Fagerberg lék m.a. með Horsens í Danmörku. Ljósmynd/Horsens

Sænski knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Ken Fagerberg er látinn, 37 ára að aldri. Hann fannst látinn í Færeyjum, þar sem hann bjó eftir að ferlinum lauk. Foreldrum hans var tilkynnt um andlátið á mánudag, að sögn Gautaborgarpóstsins.

„Hann var besta manneskja í heimi og hafði hjarta úr gulli,“ sagði Göran, faðir hans, í samtali við blaðið. „Hann var mjög hæfileikaríkur. Hann hefði getað náð lengra ef hann hefði bara lagt örlítið meira á sig.“

Fagerberg sló í gegn hjá Örgryte 18 ára gamall áður en hann gekk til liðs við danska félagið Midtjylland. Framherjinn lék síðar með nokkrum dönskum og sænskum félögum áður en hann spilaði með færeysku liðunum 07 Vestur, Tvøroyri og Royn.

Hann lék með yngri landsliðum Svíþjóðar og þótti mjög efnilegur á sínum tíma.

Fagerberg viðurkenndi í viðtali við Offside árið 2018 að hann hefði glímt við áfengis- og eiturlyfjafíkn í gegnum ferilinn. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab