Frábær sigur hjá Hákoni og félögum gegn þýska stórliðinu

Ayase Ueda fagnar jöfnunarmarki sínu í kvöld ásamt Hákoni Arnari Haraldssyni. AFP/Lo Presti

Lille vann frábæran 2:1 sigur á þýska stórliðinu Bayern München í 5. umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 

Dayot Upamecano kom Bayern yfir eftir stundarfjórðung og leiddu gestirnir í hálfleik. Heimamenn snéru taflinu við í síðari hálfleik.  Ayase Ueda jafnaði á 62. mínútu og sjálfsmark Aleksandars Pavlovic þremur mínútum síðar tryggði Lille frækinn sigur.

Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille og var tekinn af velli á 87. mínútu. 

Þetta var fyrsti sigur Lille í Meistaradeildinni á leiktíðinni. Liðið er í 29. sæti með fjögur stig en Bayern er í 15. sæti með átta stig.

Amin lék síðasta korterið í Madrid

Atlético Madrid vann 2:0 sigur á Viking í Madríd á Spáni. Alexander Sørloth kom spænska liðinu yfir á 19. mínútu og Julián Álvarez bætti við öðru marki á 24. mínútu.

Amin Cosic kom inn á sem varamaður í liði Viking á 76. mínútu. Henrik Falchener fékk að líta rauða spjaldið í liði Noregsmeistaranna í uppbótartíma. 

Atlético er í 18. sæti með sjö stig en Viking í 27. sæti með fjögur stig.

Amin Cosic með boltann í leiknum í Madríd í kvöld.

Amin Cosic með boltann í leiknum í Madríd í kvöld. AFP/Javier Soriano

Gott stig hjá Rómverjum í París

París SG og Roma skildu jöfn, 2-2, í París. Roma komst yfir með marki Mario Hermoso á 5. mínútu en Illja Zabarní jafnaði fyrir heimamenn á 31. mínútu.

Ousmane Dembélé kom Parísarliðinu yfir úr vítaspyrnu á 62. mínútu en Donyell Malen jafnaði fyrir Roma úr vítaspyrnu á 78. mínútu. París SG er í 2. sæti með 13 stig en Roma í 25. sæti með fimm stig.

Inter Mílanó vann 2-0 sigur á Stuttgart á Ítalíu. Petar Sučić skoraði úr vítaspyrnu á 57. mínútu og Lautaro Martínez innsiglaði sigurinn á 74. mínútu. Inter er í 12. sæti með níu stig en Stuttgart í 17. sæti með sjö stig.

Loks vann Fenerbahce vann 1:0 sigur á Shakhtar Donetsk á útivelli. Vedat Muriqi skoraði eina mark leiksins á 56. mínútu. Fenerbahce er í 16. sæti með átta stig en Shakhtar í 26. sæti með fjögur stig.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab