Gítarleikari Duran Duran látinn

Veröld/Fólk | AFP | 25.11.2026 | 22:20 | Uppfært 22:45

Duran Duran árið 1983. Andy Taylor gítarleikari er annar frá hægri. Ljósmynd/Wikipedia.org

Andy Taylor, gítarleikari Duran Duran, er látinn 65 ára að aldri. Hann var fæddur árið 1961.

Fjölskylda hans og hljómsveitin greina frá þessu á samfélagsmiðlinum Instagram. 

Taylor lést eftir langa og stranga baráttu við krabbamein í blöðruhálsi. 

„Andy lést heima hjá sér, í friðsælum aðstæðum, umkringdur fjölskyldu sinni á mánudaginn 23. nóvember.“

Þetta kom fram í sameiginlegri tilkynningu fjölskyldunnar og Duran Duran. 

Andy hætti í Duran Duran árið 1986 en gekk aftur til liðs við þá síðar og spilaði með sveitinni á tónleikum í Egilshöll árið 2005. Hann hætti aftur árið 2006.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab