Öruggt hjá Gísla og félögum gegn Orra

Orri Freyr Þorkelsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson mættust í Meistradeildinni í kvöld. mbl.is/Eyþór

Magdeburg vann öruggan sigur á Sporting, 37:31, í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. 

Þýska liðið var með örugga forystu allan leikinn og var sigurinn aldrei í hættu. Gísli Þorgeir Kristjánsson var öflugur í liði Magdeburg. Hann skoraði fjögur mörk og gaf sjö stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson skoraði tvö fyrir Magdeburg en Ómar Ingi Magnússon var ekki með vegna meiðsla. 

Orri Freyr Þorkelsson komst ekki á blað hjá Sporting. 

Magdeburg hefur unnið alla fjóra leiki sína í riðlinum í Meistaradeildinni og er á toppnum en Sporting er í þriðja sæti með þrjá sigra og eitt tap. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab