Gaman að kljást við Martin

Tryggvi Snær Hlinason.

Tryggvi Snær Hlinason. mbl.is/Karítas

Tryggvi Snær Hlinason verður í eldlínunni þegar Ísland mætir Bosníu í undankeppni HM 2027 í körfubolta í Laugardalshöll annað kvöld. 

Tryggvi leikur með Bilbao á Spáni þar sem tímabilið hefur gengið vel.

Liðið er um miðbik efri hluta deildarinnar og stefnir að því að tryggja sér sæti í spænska bikarnum. Þá hefur gengið vel í Evrópukeppni þar sem liðið er í efsta sæti síns riðils eftir sigur gegn Alba Berlín.

„Það gengur bara mjög vel. Okkur hefur gengið vel í spænsku deildinni og við erum í níunda sæti. Við erum á góðum stað og berjumst fyrir því að komast inn í Konungsbikarinn.“

Konungsbikarinn á Spáni er bikarkeppni þar sem átta efstu lið deildarinnar mætast í útsláttarkeppni. 

„Evrópukeppnin hefur líka gengið mjög vel. Við höfðum betur gegn Berlín og erum núna efstir í riðlinum. Við vonumst til að halda því næstu tvo leiki og komast þannig beint áfram í næsta hluta keppninnar,“ sagði Tryggvi.

Hann mætti liðsfélaga sínum í landsliðnu Martin Hermannssyni þegar lið þeirra mættust í Evrópukeppninni og segir alltaf skemmtilegt að takast á við hann.

„Það var mjög gaman. Það er langt síðan maður hefur spilað almennilega á móti honum. Eftir að hafa tapað með þremur stigum í Berlín var mjög gaman að ná að vinna seinni leikinn á heimavelli.

Þá getur maður verið með smá montrétt þegar við hittumst. Það er alltaf gaman að spila á móti Martin. Hann er náttúrulega magnaður leikmaður,“ sagði Tryggvi.

Nánar er rætt við Tryggva Snæ og Craig Pedersen landsliðsþjálfara í Morgunblaðinu sem kemur út í fyrramálið.

Tryggvi Snær Hlinason ræddi við mbl.is í gær.

Tryggvi Snær Hlinason ræddi við mbl.is í gær. mbl.is/Karítas

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab