Gengu gegn kynbundnu ofbeldi

Kveikt var á ljósum til að vekja athygli á stafrænu ofbeldi. Harpan var appelsínugul. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ljósaganga UN Women, kvenréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, fór fram í dag á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Ljósagangan hófst klukkan 5 síðdegis á Akureyri og í Reykjavík sem kom átakinu af stað.

UN Women á Íslandi stendur að átakinu ásamt fjölda félagasamtaka. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, leiddi ljósagönguna í Reykjavík ásamt Maríu Rut Kristinsdóttur þingkonu og Ingileifu Friðriksdóttur, aðstoðarmanni utanríkisráðherra.

María Rut og Ingileif eru hjón en þær hafa ítrekað orðið fyrir hatursfullum og meiðandi ummælum vegna starfa sinna í þágu mannréttindabaráttu og kynhneigðar.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrar leiddi gönguna fyrir norðan ásamt lögregluþjónum.

Ljósaganga fór fram gegn stafrænu ofbeldi á Akureyri.

Ljósaganga fór fram gegn stafrænu ofbeldi á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Raunveruleg ljót ummæli

Efni herferðarinnar gegn stafrænu ofbeldi byggir á raunverulegum ummælum sem hafa verið látin falla á netinu opinberlega og beinast gegn einstaklingum eða hópi fólks.

„Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“ er yfirskrift átaksins.

Stella, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, segir að tvær af hverjum þremur konum í heiminum hafi orðið fyrir stafrænu kynbundnu ofbeldi.

„Hatursfull og meiðandi ummæli á stafrænum miðlum eru orðin að samfélagsmeini sem ógnar grunnstoðum lýðræðisins. Þess vegna mun UN Women á Íslandi beina athyglinni að þessari tegund stafræns ofbeldis í ár,“ segir Stella.

„Umfang þess er orðið slíkt að yfirvöld hafa ekki bolmagn til að sinna öllum þeim málum sem koma inn á borð til þeirra. 16 daga átakið í ár snýst því ekki aðeins um að vekja fólk til vitundar um skaðsemi stafræns ofbeldis, og þá einkum hatursfullra og meiðandi ummæla á stafrænum miðlum, heldur einnig um að hvetja stjórnvöld til að tryggja aukið fjármagn til lögreglunnar svo hægt sé að sækja slík mál til saka. Það verður ekkert réttlæti fyrir þolendur ef ekki er hægt að tryggja rannsókn máls sökum manneklu og fjárskorts.“

Samkomuhúsið á Akureyri var meðal þeirra húsa sem lýst voru appelsínugul til þess að vekja athygli á stafrænu ofbeldi. mbl.is/Þorgeir

Húsin lýst upp í appelsínugulum lit

Hluti af átakinu felst í því að lýsa upp hús með appelsínugulu ljósi. Er það gert til að vekja athygli á stafrænu ofbeldi.

Appelsínugulur litur er sagður tákna framtíð án ofbeldis. Hann er jafnframt litur alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi.

Fjöldi bygginga er lýstur upp með appelsínugulum ljósum, þar á meðal eru Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri, Tækniskólinn í Reykjavík, Harpa, Hof menningarsetur, Listasafn Akureyrar, Þjóðminjasafnið, Ásmundarsalur, Gróttuviti, Hallgrímskirkja, Háteigskirkja, Kópavogskirkja, Mannréttindahúsið, Ráðhús Reykjavíkur og Stjórnarráðsbyggingin. Bensínstöð Atlantsolíu við Sprengisand verður líka lýst upp meðan á átakinu stendur, en Atlantsolía er stuðningsaðili 16 daga átaksins gegn kynbundnu ofbeldi ásamt Colas.

Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir.

Afleiðingarnar gífurlegar

Stafrænt ofbeldi hefur í för með sér gífurlegar afleiðingar fyrir þann sem verður fyrir því. Ítrekuð niðrandi og hatursfull ummæli á stafrænum miðlum geta haft djúpstæð áhrif á heilsu, líðan og tækifæri fólks til að taka þátt í þjóðfélaginu.

Allir geta orðið fyrir slíkum ummælum og árásum en rannsóknir sýna að ákveðnir hópar fólks eru líklegri til að verða fyrir því en aðrir.

„Konur sem gegna opinberum störfum, hinsegin fólk, innflytjendur, konur í fjölmiðlum, ungt fólk og fatlaðar konur eru margfalt líklegri til að vera beittar slíku ofbeldi. Stafrænt ofbeldi hefur raunveruleg og djúpstæð áhrif á heilsu, líðan og tækifæri þolenda til þátttöku í samfélaginu.“

Ráðhús Reykjavíkur var appelsínugult.

Lögregluþjónar leiddu gönguna ásamt bæjarstjóra.

Lögregluþjónar leiddu gönguna ásamt bæjarstjóra. mbl.is/Þorgeir

Gengið var niður Arnarhól.

Fólk kom saman í Reykjavík til að mótmæla stafrænu ofbeldi.

Harpan upplýst til að vekja athygli á stafrænu ofbeldi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab