Bláa lónið varð fyrir netárás

Bláa Lónið varð fyrir netárás í dag.

Bláa lónið varð fyrir netárás í dag eins og fleiri íslensk fyrirtæki og stofnanir.

„Það var gerð netárás á bókunarsíður Bláa lónsins í dag. Við erum sem betur fer með mjög öflugt öryggisvöktunarkerfi og það var brugðist hratt og rétt við ógninni,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa lónsins við mbl.is.

Hún vildi ekki svara því hvenær netárásin var gerð eða hvers eðlis hún var vegna öryggisástæðna en segir árásina ekki hafa haft mikil áhrif á daglegan rekstur.

Aðspurð vill hún ekki segja af eða á um hvort tölvuþrjótarnir hafi komist yfir gögn frá fyrirtækinu. Netárásin hafi þó haft áhrif á mjög fáa viðskiptavini sem allir hafi verið látnir vita sem og viðeigandi eftirlitsaðilar.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS ákváðu í dag að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum á Íslandi og löndunum í kring.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab