Bræðurnir sameinaðir
Bræðurnir Sigurður og Hilmar Péturssynir eru báðir í leikmannahópi íslenska landsliðsins í körfubolta.
Ísland mætir Bosníu í Laugardalshöll annað kvöld og síðan Tyrkjum ytra á sunnudag.
Sigurður leikur með Álftanesi en Hilmar leikur með Keflavík. Þeir áttu báðir stórkostlegan leik þegar liðin mættust fyrir rúmlega mánuði síðan á Álftanesi.
Sigurður skoraði 36 stig en Hilmar 32 fyrir Keflavík, en Álftanes hafði betur 130:110.
Hilmar var ekki í upphaflega landsliðshópi Craig Pedersen en var kallaður inn fyrir nokkrum dögum.
„Ég er mjög glaður fyrir hans hönd að vera kominn inn í þennan hóp. Ég hef sagt við alla vini mína að hann sé að berjast við mjög góða leikmenn um sæti í hópnum.
Martin, Elvar og Ægir eru augljóslega allir mjög góðir í körfubolta. Það er styrkleikamerki fyrir hann að vera kominn inn í þennan hóp og ég er bara glaður fyrir hans hönd,“ sagði hann.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
