„Krefjandi aðstæður“
Jökull ÞH sökk um 100 kílómetra frá landi austan af glettingi. Þar er unnið að björgunarstörfum við krefjandi aðstæður. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson
Hvasst var úti á sjó og mikil ölduhæð þar sem fiskiskipið Jökull ÞH299 sökk úti fyrir Austurlandi síðdegis í dag.
Ölduhæðin var um 8 til 10 metrar og hafði verið síðan síðustu nótt. Háflóð standa nú yfir og áfram er búist við miklum öldugangi.
Vindurinn var um 13 til 18 metrar á sekúndu. Dregið hefur úr vindi síðan þá en nú er hann um 10 til 15 metrar á sekúndu. Búist er við því að hvessi aftur í kvöld og í nótt.
Hera Guðlaugsdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, greinir frá þessu í samtali við mbl.is. Hún segir skúri líka vera á svæðinu.
„Þetta eru örugglega krefjandi aðstæður,“ segir hún.
Fjöldi viðbragðsaðila á leiðinni
Sautján skipverjar voru um borð í skipinu þegar það sökk um 100 kílómetra frá landi við Héraðsdjúp austur af Glettingi. Það er staðsett milli Austurdjúps og Austfjarðardjúps.
Viðbragðsaðilar, sjóbjörgunarsveitir þar á meðal, eru að störfum við að koma skipverjum úr sjónum. Þyrla og TF-SIF, eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, eru á leiðinni.
Þrjú björgunarskip frá Raufarhöfn, Vopnafirði og Neskaupstað eru einnig á leiðinni á svæðið.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗