Fiskiskip komið á staðinn þar sem Jökull sökk
Innlent | mbl | 25.11.2026 | 21:52
Uppsjávarskipið Svanur sem er í eigu Brim er komið á slysstað þar sem fiskiskipið Jökull ÞH299 sökk úti fyrir Austurlandi. Eins er skuttogarinnar Harðbakur EA sem er í eigu Samherja nærri.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er einnig komin á vettvang og standa björgunaraðgerðir yfir.
Skammt er í Skinney frá Þinganesi og frystitogarann Blængur frá Norðfirði. Skipin hefja leit um leið og þau koma á vettvang.
Einhverjir skipverja Jökuls hafa náð að festa sig saman og merki bárust frá neyðarsendum samkvæmt upplýsingum mbl.is.
Enn er nokkuð í að björgunarskipin þrjú sem send voru af stað komi á vettvang en björgunarskipið Hafbjörg frá Norðfirði er þeirra næst.
Línubaujur eru á svæðinu þar sem Jökull sökk.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗