Meistaradeildin: Isak í stuði fyrir Liverpool - United illa leiknir af dómaranum í Portúgal

Hörður Snævar Jónsson

Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 22:00

Bruno Fernandes - Youri Tielemans Getty Images

Níu leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld þar sem boðið var upp á 25 mörk. Manchester United missti niður forystu gegn Sporting, Liverpool vann sannfærandi sigur og Lille gerði sér lítið fyrir og lagði Bayern München.

Sporting 2-2 Manchester United

Bruno Fernandes skoraði bæði mörk Manchester United gegn sínum gömlu félögum í Sporting. Luis Suárez skoraði einnig tvívegis fyrir heimamenn, fyrst úr vítaspyrnu og síðan með glæsilegri bakfallsspyrnu eftir mistök Senne Lammens í marki United. Youri Tielemans fékk rautt spjald undir lokin og Mauricio Pochettino bíður enn eftir fyrsta sigrinum með United.

United var illa leikið af dómaranum í leiknum og var að minnsta kosti eitt löglegt mark tekið af liðinu.

Club Brugge 0-3 Liverpool

Alexander Isak skoraði tvívegis þegar Liverpool vann öruggan útisigur í Belgíu. Florian Wirtz bætti við þriðja markinu eftir góðan undirbúning Rio Ngumoha. Liverpool heldur því áfram að sækja að efstu sætum deildarkeppninnar.

Lille 2-1 Bayern München

Óvæntustu úrslit kvöldsins komu í Frakklandi þar sem Lille lagði Bayern München. Dayot Upamecano kom Bayern yfir en Ayase Ueda jafnaði áður en Aleksandar Pavlovic varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem fagnaði mikilvægum sigri.

Sabah 1-4 Barcelona

Anthony Gordon skoraði tvö mörk fyrir Barcelona í Aserbaídsjan og þeir Karim Adeyemi og Gabriel Jesus bættu við mörkum. Joy-Lance Mickels skoraði eina mark Sabah. Barcelona hefur nú unnið fjóra af fimm leikjum sínum í keppninni.

Atlético Madrid 2-0 Viking

Alexander Sørloth og Julián Álvarez skoruðu mörk Atlético í fyrri hálfleik gegn norska liðinu Viking. Sørloth skoraði þar með sitt fyrsta mark síðan í maí en þurfti síðar að fara meiddur af velli. Henrik Falchener, leikmaður Viking, fékk rautt spjald undir lokin.

Inter 2-0 Stuttgart

Petar Sučić kom Inter yfir með marki úr vítaspyrnu á 57. mínútu áður en Lautaro Martínez tryggði ítalska liðinu sigurinn á 74. mínútu.

PSG 2-2 Roma

Mario Hermoso kom Roma yfir en Illia Zabarnyi jafnaði fyrir PSG. Ousmane Dembélé kom Frökkunum síðan yfir úr vítaspyrnu áður en Donyell Malen jafnaði, einnig af vítapunktinum. PSG missti þar með sín fyrstu stig í deildarkeppninni.

Slavia Prag 0-1 Villarreal

Tajon Buchanan skoraði eina mark leiksins á 62. mínútu og tryggði Villarreal mikilvæg þrjú stig. Heimamenn töldu sig hafa fengið vítaspyrnu undir lokin en henni var snúið við eftir skoðun myndbandsdómara.

Shakhtar Donetsk 0-1 Fenerbahçe

Vedat Muriqi reyndist hetja Fenerbahçe þegar hann skoraði sigurmarkið á 56. mínútu. Tyrkneska liðið vann þar með mikilvægan útisigur í baráttunni um sæti í útsláttarkeppninni.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab