Framlengir í Garðabænum

Snædís María Jörunsdóttir

Snædís María Jörunsdóttir Ljósmynd/Stjarnan

Knattspyrnukonan Snædís María Jörundsdóttir hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna út keppnistímabilið 2028.

Á ferlinum hefur Snædís María komið við sögu í 32 leikjum með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim 18 mörk.

Hún er 22 ára sóknarmaður sem hefur leikið bæði með Stjörnunni og FH á meistaraflokksferlinum.

Snædís er uppalin hjá Stjörnunni en færði sig yfir í FH á seinni hluta ársins 2023. Þar lék hún út tímabilið 2024 áður en leiðin lá aftur í Garðabæinn. Á síðasta tímabili skoraði hún fjögur mörk í Bestu deildinni og tvö til viðbótar í bikarkeppninni.

„Knattspyrnudeild Stjörnunnar er stolt að Snædís María hafi ákveðið að halda áfram með okkur og taka slaginn áfram í bláu treyjunni. Hún er einn af okkar lykilleikmönnum og er hennar framlag til liðsins afar mikilvægt," segir meðal annars í tilkynningu Stjörnunnar.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab