Sporting - Man. Utd, staðan er 2:2

Manchester United og Sporting skildu jöfn, 2:2, í 5. umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í Lissabon í Portúgal í kvöld.

United er í 19. sæti með sjö stig en Sporting er með 10 stig í 9. sæti.

Leikurinn var rólegur framan af og fátt um færi. Heimamenn fengu dæmda vítaspyrnu á 29. mínútu þegar Lisandro Martínez braut á Geny Catamo. Luis Suárez steig á vítapunktinn en Senne Lammens markvörður Manchester United greip slaka vítaspyrnu hans. 

Heimamenn fengu svo aðra vítaspyrnu skömmu síðar þegar Lammens átti misheppnað úthlaup og tók niður Maximiliano Araujo. Í þetta skiptið urðu Suárez á engin mistök og hann kom heimamönnum yfir á 33. mínútu. 

Luis Suarez tók tvær vítaspyrnur í fyrri hálfleik. Hann misnotaði þá fyrri en skoraði úr þeirri síðari. AFP/Patricia De Melo

Gestirnir töldu sig svo hafa skorað löglegt mark undir lok fyrri hálfleiks. Youri Tielemans var þá á undan varnarmanni Sporting í boltann og laumaði honum inn á Amad Diallo sem slapp í gegn. Diallo setti boltann í slánna, en fylgdi á eftir og skallaði hann í netið, en var þó mögulega rangstæður. 

Szymon Marciniak dómari dæmdi hins vegar aukaspyrnu á Tielemans sem lenti á varnarmanni Sporting eftir sendingu og gaf Belganum gult spjald. 

Frábær byrjun United í seinni hálfleik

Heimamenn voru marki yfir í hálfleik en gestirnir komu af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn. Lisandro Martínez krækti í vítaspyrnu þegar Eduardo Quaresema braut á honum og Portúgalinn Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, skoraði af öryggi og jafnaði á 48. mínútu. 

Fernandes var aftur á ferðinni tveimur mínútum síðar þegar hann skoraði skrautlegt mark. Portúgalinn lét vaða með vinstri fæti af um 25 metra færi, boltinn hafði viðkomu í þúfu á vellinum og skaust yfir Kaique Pereira markvörð Sporting. 

Leikmenn Manchester United fagna seinna marki Bruno Fernandes í kvöld.

Leikmenn Manchester United fagna seinna marki Bruno Fernandes í kvöld. AFP/Patricia De Melo

Umdeild atvik

Heimamenn jöfnuðu metin þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Lammens gerði sig þá sekan um slæm mistök og missti háa fyrirgjöf frá sér til Suarez sem klippti boltann í autt netið. 

Suarez hindraði Lammens mögulega örlítið en markið fékk að standa. 

United skoraði svo skömmu síðar mark eftir hornspyrnu. Bruno Fernandes sendi boltann inn á teiginn þar sem Pereira markvörður sló boltann í eigið net.

Eftir að hafa farið í skjáinn dæmdi Marciniak dómari markið af þar sem hann taldi Patrick Dorgu hafa brotið á markverðinum. 

Marciniak hafði í nógu að snúast í kvöld og hann rak Belgann Youri Tielemans af velli í uppbótartíma. Belginn fékk þá sitt annað gula spjald. 

Fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli því niðurstaðan í Lissabon.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab