Líkar vel í Rúmeníu

Styrmir Snær Þrastarson.

Styrmir Snær Þrastarson. mbl.is/Karítas

Styrmir Snær Þrastarson og félagar í íslenska landsliðinu í körfubolta mæta Bosníu í undankeppni HM 2027 annað kvöld.

Styrmir hefur verið að festa sig betur í sessi innan landsliðsins og hlutverk hans fer sífellt stækkandi. Styrmir var einn af ljósu punktunum í íslenska liðinu gegn Tyrklandi. 

Hann leikur nú með Rapid Búkarest í Rúmeníu en hann gekk í raðir liðsins í sumar og er sáttur með dvöl sín það sem af er.

„Þetta er allt öðruvísi en maður er vanur, önnur menning og körfuboltinn kom mér á óvart. Þetta er sterkt deild og mörg lið frá Rúmeníu sem taka þátt í Evrópukeppni, þannig að það er mjög gaman og góð stemning.

Ég er mjög sáttur við breytinguna og er í stóru hlutverki. Það gengur bara vel,“ sagði hann í samtali við mbl.is.

Styrmir Snær Þrastarson í viðtali við mbl.is.

Styrmir Snær Þrastarson í viðtali við mbl.is. mbl.is/Karítas

Nánar er fjallað um leik Íslands og Bosníu á íþróttasíðum Morgunblaðsins sem kemur út í fyrramálið.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab