Tilkynning frá Landhelgisgæslunni um slysið
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að umfangsmiklar björgunaraðgerðir standi nú yfir úti fyrir Austurlandi eftir að skipstjóri íslensks fiskiskips lýsti yfir neyðarástandi laust eftir klukkan 17 í dag. Landhelgisgæslunni bárust í kjölfarið upplýsingar um að áhöfnin væri að yfirgefa skipið.
Þar segir að þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hafi þegar í stað verið kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Þá voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.
Í flotgöllum
Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að varðstjórar í stjórnstöð hennar hafi beðið áhöfn fiskiskipsins um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar bárust upplýsingar um að áhöfnin væri að yfirgefa skipið.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra og Austurlandi.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang um klukkan 20 og laust eftir klukkan 21 komu þyrla gæslunnar og fiskiskip sem beðin höfðu verið um að halda á vettvang.
Ekki kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar hversu margir eru í áhöfn skipsins eða hvað olli neyðarástandinu.
Björgunaraðgerðir standa enn yfir og er von á frekari upplýsingum frá Landhelgisgæslunni klukkan 22:30.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/54/80/1548071.jpg)