Guardiola útskýrir af hverju hann hafnaði Ítalíu: „Ég þurfti að stoppa“
Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 21:30
Tekst Guardiola að fá Marmoush? Getty Images
Pep Guardiola hefur greint frá því hvers vegna hann hafnaði tækifærinu til að taka við ítalska landsliðinu í knattspyrnu.
Guardiola segir að Paolo Maldini og Leonardo hafi haft samband við sig en tímasetningin hafi ekki hentað honum.
„Maldini og Leonardo eru menn sem mér þykir mjög vænt um, en þeir höfðu samband á þeim tímapunkti þegar ég þurfti að stoppa,“ sagði Guardiola.
Spánverjinn ákvað þess í stað að taka sér hlé frá þjálfun og eyða tíma í Brasilíu. „Ég vildi koma hingað til Bahia og eyða meiri tíma með sjálfum mér.“
Guardiola segir álagið hafa verið gríðarlegt undanfarin ár. „Ég hef verið þjálfari í 18 ár og spilað á þriggja daga fresti. Maður þarf stöðugt að vinna titla.“
„Það kemur að því að maður hugsar: Í stað þess að borða spaghetti á hverjum degi er líka gott að fá sér kjöt öðru hverju.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗