Allir sautján í sjónum – Skipið sokkið
Allir sautján skipverjar á íslenska fiskveiðiskipinu Jökli ÞH299, sem sendi neyðarkall fyrr í dag þegar það var 100 kílómetra austur af landinu, eru í sjónum.
Talið er að skipið sé sokkið, samkvæmt upplýsingum mbl.is.
Merki berast frá neyðarsendum en björgunargallar eru útbúnir slíkum sendum. Hluti mannanna hefur náð að festa sig saman og er með talstöð.
Fjöldi skipa stefnir í átt að slysstað. Sjá má á siglingarvefnum Marine Traffic að TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, er komin á staðinn. Eins er þyrla Gæslunnar á leið á vettvang.
Flugvélin hefur fyrst og fremst það hlutverk að fylgjast með úr lofti. Eiginlegar björgunaraðgerðir eru ekki mögulegar fyrr en skip koma á staðinn eða þyrla Gæslunnar.
Skjáskot af vef MarineTraffic sem sýnir stöðu skipa í grennd, ásamt flugvél Landhelgisgæslunnar sem er á flugi yfir slysstað.
Á fullu stími
Samkvæmt heimildum mbl.is eru fiskiskip á rauðu stími, 14-15 hnútum, sem er „rúmlega hámarkshraði“ þessara skipa.
Enn er nokkuð í að skipin komi á slysstað. Björgunarskipin eru aftur á móti nær 20 hnútum en eru ekki komin jafn langt.
Meðal annars hafa skip verið send norður af slysstað en eins sviðsmyndin er sú að menn reki þangað með hafstraumi.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
