Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Skipverjar í sjónum - Björgunaraðgerðir standa yfir
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 20:59
Jökull. Mynd: Facebook-síða
Fiskiskipið sem er í vanda statt austur af landinu heitir Jökull og hefur skráningarnúmerið ÞH299 en 17 manns eru um borð. Aðstæður á staðnum eru afar erfiðar. Allt tiltækt björgunarlið er á leið á staðinn eða komið þangað. Skipið er sokkið og allir skipverjar í sjónum. Björgunaraðgerðir standa nú yfir.
Skipið er gert út frá Raufarhöfn en eigandi þess er fyrirtækið GPG Seafood sem er með höfuðstöðvar á Húsavík. Skipið var smíðað árið 1996 í Noregi. Það er 38,5 metrar að lengd og 960 brúttótonn.
Fyrirtækið eignaðist skipið árið 2020 en það er gert út á línu- og netaveiðar.
Samkvæmt Marinetraffic.com eru björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar og varðskipið Freyja á leið á staðinn. Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF er komin að slysstaðnum auk nokkurra fiskiskipa. Ekki er vitað um staðsetningu þyrlu gæslunnar á þessu stigi.
Uppfært kl. 21:18
Samkvæmt heimildum DV er Jökull sokkinn. Allir skipverjarnir 17 munu vera í sjónum og í flotgöllum sem eru útbúnir neyðarsendum en merki hafa borist frá sendunum.
Fyrirsögn fréttarinnar hefur verið breytt til samræmis við þetta.
Uppfært kl. 21:30
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni sem var að berast rétt í þessu segir að skipstjóri íslensks fiskiskips (Jökuls, innsk. DV) hafi haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar laust eftir klukkan 17 og lýst yfir neyðarástandi.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.
Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum og skömmu síðar fékk Landhelgisgæslan upplýsingar um að áhöfnin væri að yfirgefa skipið.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra og Austurlandi.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang um klukkan átta og laust eftir klukkan níu kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang. Aðgerðir standa yfir.
Von er á næstu tilkynningu frá Landhelgisgæslunni klukkan 22:30.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗