Krefjast aðgerða eftir að hundar drápu köttinn þeirra - Aðkoma lögmanns að málinu mögulega tekin til sérstakrar athugunar
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 21:00
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Umboðsmaður Alþingis hefiur lokið meðferð sinni á kvörtun tveggja einstaklinga sem segja að köttur þeirra hafi verið drepinn af tilgreindum hundum tiltekins eiganda. Lýsa kattareigendurnir yfir mikilli óánægju með meðferð sveitarfélagsins, þar sem þetta átti sér stað, á málinu. Í kvörtuninni er krafist ýmissa aðgerða af hálfu sveitarfélagsins en nafn þess hefur verið afmáð úr opinberri útgáfu bréfs umboðsmanns til kattareigandanna. Segist umboðsmaður með það til skoðunar að taka aðkomu lögmanns, á vegum sveitarfélagsins, að málinu til sérstakrar athugunar.
Í bréfi umboðsmanns segir að eftir að kvörtunin barst embættinu hafi sveitarfélagið svarað erindi kattareigandanna. Segir enn fremur að kvörtunin hafi lotið að afgreiðslu sveitarfélagsins á kröfu þeirra um að eiganda hundanna verði bannað hundahald, hundarnir fjarlægðir án tafar, afstöðu til aðildar þeirra að málinu og synjun um aðgang að gögnum.
Umboðsmaður minnir á að samkvæmt lögum sé ekki unnt að kvarta til embættisins vegna máls sem skjóta megi til æðra stjórnvalds fyrr en það hafi fellt úrskurð sinn í málinu. Af kvörtun kattareigandanna og þeim gögnum sem henni fylgdu verði ráðið að sveitarfélagið hafi tekið kröfu þeirra um hundahaldið til skoðunar á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, og lokið málinu að undangenginni rannsókn.
Þá hafi sveitarfélagið ekki talið eigendur kattarins eiga aðild að stjórnsýslumáli um eftirlit eða beitingu þvingunarúrræða gagnvart eiganda hundanna og því ekki fallist á að þeir ættu rétt til aðgangs að gögnum málsins á grundvelli stjórnsýslulaga. Jafnframt hafi sveitarfélagið synjað um aðgang að umbeðnum gögnum á grundvelli upplýsingalaga.
Nefnd
Umboðsmaður minnir á að sveitarfélagið hafi bent kattareigundunum á að hægt sé að kæra ákvörðun þess í málinu, hvað varðar hundahaldið, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Synjunina á aðgangi að gögnum málsins sé síðan hægt að kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Segir umboðsmaður eigendunum að þeir verði því að leita til þessara tveggja nefnda áður en embættið fjalli frekar um kvörtun þeirra. Það eigi einnig við um ágreining um mögulega aðild þeirra að kærumáli fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Séu eigendur kattarins enn ósáttir að fenginni niðurstöðu þessara nefnda geti þeir leitað til umboðsmanns með kvörtun þar að lútandi.
Að lokum upplýsir umboðsmaður eigendur kattarins um að embættið hafi staldrað við hvernig aðkomu lögmanns að málsmeðferð sveitarfélagsins virðist hafa verið háttað og til skoðunar sé að embættið taki þann þátt málsmeðferðarinnar til almennrar athugunar að eigin frumkvæði. Komi til þess verði ekki tilkynnt um það sérstaklega nema á vefsíðu umboðsmanns.
Að svo komnu máli lætur umboðsmaður Alþingis meðferð sinni á kvörtun eigendanna, sem misstu köttinn sinn með þessum grimmilega hætti, lokið
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗