Beint: Sautján skipverjar í sjávarháska

Íslenskt fiskveiðiskip er í vanda á Héraðsdjúpi um 100 kílómetra austur af Glettingi. Sautján skipverjar voru um borð þegar kallið barst en samkvæmt heimildum mbl.is er um sjávarháska að ræða. 

Sjóbjörgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út. 

TF-SIF, eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, er á leið á vettvang.

Þá eru þrjú björgunarskip frá Raufarhöfn, Vopnafirði og Neskaupstað á leið á svæðið en talsverður tími er í að þau komist að þeim stað þar sem síðast var vitað af skipinu.

Minnst fimm fiskveiðiskip eru á leið á vettvang.

Slæmt veður er á slysstað eða 13-20 metra vindhraði á sekúndu, en ölduhæð um fjórir til fimm metrar.

Hér má fylgjast með fréttum af gangi mála. Ábendingar eru þegnar á [email protected].

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab