Lést eftir að hafa orðið fyrir eldingu
Argentínski knattspyrnumaðurinn Iván Miers, 35 ára, lést á föstudag eftir að eldingu laust niður í hann og liðsfélaga hans, Juan Romero, í æfingaleik með Club Sportivo Patria.
Atvikið varð á heimavelli félagsins í Formosa í Argentínu. Juan Carlos Hermosí, þjálfari liðsins, sagði veðrið hafa breyst skyndilega. Himinninn hefði dökknað og aðeins sekúndum eftir að fyrstu regndroparnir féllu laust eldingu niður í leikmennina tvo sem stóðu nálægt hvor öðrum.
Báðir voru fluttir á sjúkrahús. Miers lést nokkrum klukkustundum síðar þrátt fyrir endurlífgunartilraunir en Romero komst aftur til meðvitundar og er úr lífshættu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/54/1695475.jpg)