Arnór stórkostlegur í Svíþjóð
Karlskrona mátti þola slæmt tap gegn Önnered í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta 34:31 á heimavelli í kvöld. Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson var markahæstur heimamanna með níu mörk.
Arnór hefur verið frábær í liði Karlskrona í vetur en liðið er í vandræðum í deildinni. Liðið er í þriðja neðsta sæti með aðeins sjö stig: þrjá sigra, eitt jafntefli og sjö töp.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗