Serbinn farinn frá Njarðvík
Serbneski miðherjinn Aleksa Ilic er á förum frá Njarðvík í úrvalsdeild karla í körfubolta og leikur ekki meira með félaginu á þessari leiktíð.
Ilic var með 13,4 stig og 7,9 fráköst að meðaltali í leik í þeim sjö deildarleikjum sem hann spilaði fyrir Njarðvíkurliðið.
Njarðvík hefur farið afar illa af stað í deildinni og aðeins unnið einn af sjö leikjum sínum það sem af er leiktíð.
„Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur þakkar Ilic fyrir samstarfið á tímabilinu og óskar honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér næst fyrir hendur," segir í tilkynningu Njarðvíkur.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/54/1695464.jpg)