Farþegum frá Keflavík vísað í rangan komusal

Flugfélagið easyJet hefur beðið farþegana afsökunar og hyggst rannsaka hvað fór úrskeiðis við komuna til Edinborgar. AFP/Philippe Huguen

Farþegum í vél easyJet frá Keflavík var fyrir mistök vísað í komusal innanlandsflugs þegar þeir lentu í Edinborg á laugardaginn.

Þeir fóru því fram hjá vegabréfaeftirlitinu og komust heldur ekki að færiböndunum þar sem þeir áttu að sækja farangur sinn.

Vélin, sem var í flugi númer EZY3316, lenti í Edinborg um klukkan 12.48, að því er The Independent greinir frá. Að sögn talsmanns flugvallarins urðu mistökin þegar starfsmaður fyrirtækisins sem annaðist flugafgreiðsluna vísaði farþegunum ranga leið eftir lendingu.

Ráfuðu um í leit að töskunum

Einn farþeganna vakti fyrst athygli á málinu á samfélagsmiðlum, að sögn Edinburgh Evening News. Í færslunni kom fram að enginn hefði skoðað vegabréf farþeganna og að þeir hefðu ráfað um flugstöðina í leit að töskunum sínum.

Að sögn talsmanns flugvallarins brugðust starfsmenn þegar við um leið og þeim varð ljóst hvað gerst hafði. Þeir fylgdu farþegunum ásamt breskum landamæravörðum í komusal millilandaflugs, þar sem vegabréf þeirra voru skoðuð.

Talsmaður easyJet bað farþegana afsökunar í samtali við The Sun og sagði flugfélagið taka málið alvarlega. Félagið hyggst rannsaka atvikið í samvinnu við fyrirtækið sem annaðist flugafgreiðsluna. Skýrsla um málið verður send breska samgönguráðuneytinu.

Frá Edinborg í Skotlandi.

Frá Edinborg í Skotlandi. AFP

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab