Fjölskylduharmleikur vegna peninga - Fékk sjálfsvígshugsanir 16 ára vegna pressu um að borga allt

Emmanuel Adebayor, fyrrverandi framherji Arsenal, Manchester City og Tottenham, hefur lýst því hvernig fjárhagslegar kröfur fjölskyldu hans höfðu mikil áhrif á andlega líðan hans.

Í viðtali við TRT World rifjaði Adebayor upp að aðeins 16 ára gamall hefði hann glímt við sjálfsvígshugsanir vegna stöðugra skilaboða frá ættingjum sem óskuðu eftir peningum.

„Ég hafði ekkert til að lifa fyrir. Þetta hafði engan tilgang,“ sagði Adebayor, sem segir vin sinn hafa hjálpað sér í gegnum erfiðan tíma.

Adebayor segist hafa greitt móður sinni 2.000 dollara mánaðarlega, en hún hefur hafnað því og sagt hann ekki einu sinni hafa gefið sér 200 dollara.

Hann kveðst einnig hafa byggt fjölskyldunni hús í Gana fyrir 1,2 milljónir dollara sem systir hans hafi síðan leigt út.

Þá hefur hann sakað tvo bræður sína um að hafa hótað sér með hnífi á heimili hans í Mónakó vegna peningadeilna.

Árið 2014 sagði Adebayor að fjölskyldan hefði krafist þriggja milljóna punda af sér.

Samskiptin urðu að lokum svo slæm að hann ákvað að slíta tengslunum.

„Ég tala ekki lengur við fjölskylduna mína, en ég tala við vini mína,“ sagði Adebayor árið 2017.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab