Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn

Fiskiskip er í vanda statt austur af landinu og björgunaraðilar eru á leið á staðinn en litlar upplýsingar liggja fyrir um stöðuna en skipverjar eru þó sagðir í sjávarháska og munu vera alls 17 talsins. 

Þyrla og flugvél Landhelgisgæslunnar og þrjú björgunarskip Landsbjargar eru á leið á staðinn og nærstödd fiskiskip hafa verið kölluð til aðstoðar. Skipið mun vera statt austur af landinu en Mbl.is segist hafa heimildir fyrir því að skipið sé íslenskt, sautján manns séu um borð og skipið sé statt um hundrað kílómetra austur af Glettingi. Segir í frétt Mbl að skipverjar séu í sjávarháska og nokkur tími sé enn í björgun en veður er slæmt á staðnum.

Miðað við vefsíðuna Marinetraffic.com er töluverður fjöldi skipa á leið á staðinn.

Skipið mun hafa sent frá sér neyðarkall síðdegis í dag. Landhelgisgæslan, lögreglan á Austurlandi og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hafa litlar upplýsingar viljað veita fjölmiðlum en von mun vera á tilkynningu síðar í kvöld.

Uppfært kl. 20:04

Samkvæmt heimildum DV eru 17 manns um borð í skipinu og fyrirsögn fréttarinnar hefur því verið breytt í samræmi við það.

Uppfært kl. 20:12

Samkvæmt Marinetraffic.com er eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF komin að slysstaðnum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab