Þorgerður Katrín: Annaðhvort gunguskapur eða tækifærismennska að styðja ekki bókun 35
Við Íslendingar getum ekki setið hjá á meðan Kanadamenn, Norðmenn og Bretar kanna leiðir til að tengjast ESB nánar. Verkefnin blasa við eftir nei-ið í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Við ræktum líka gott samband við Bandaríkin og fríverslunarsamningar við Indland og Víetnam bjóða upp á mikil tækifæri. Við þurfum að huga vel að utanríkis- og varnarmálum, auk þess sem við horfum til viðskiptasambanda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Ég er nú sannfærður um það að við búum í heimi sem er að breytast, hefur breyst og er enn að breytast. Ég hef bjargfasta vissu fyrir því að Evrópumálin og Evrópusambandsaðild er ekkert farið endanlega út af borðinu. Það var hægt að fella það að halda áfram núna en það var ekki hægt að kjósa burt stöðuna í alþjóðamálum. Og næsta verkefni okkar til að einmitt efla EES-samninginn, það er að samþykkja bókun 35.
„Já, það er að samþykkja þetta eðlilega, ja, ég myndi segja bara réttlætismál og það að íslenskir einstaklingar og lögaðilar, litlu fyrirtækin og meðalstóru og stóru fyrirtækin, sitji við sama borð og aðrar Evrópuþjóðir þannig að mér finnst ef að fólk ætlar í þinginu ekki að samþykkja bókun 35 eftir allt það sem á undan er gengið, þá er það annaðhvort út af gunguskap að mínu mati eða tækifærismennsku ef fólk gerir það ekki.
Ókei, nú mun ég kveikja í einhverjum. Þannig að það sé á hreinu, en síðan eru náttúrlega risavaxin verkefni núna. Einmitt, við þurfum að fara þá aðrar leiðir til þess að styrkja hagsmuni Íslands og passa upp á samkeppnishæfnina og ég er mjög stolt af því að hafa strax upp úr þjóðaratkvæðagreiðslunni farið í það að skipa spretthóp til þess að fara yfir tækifæri Íslands varðandi viðskipti og atvinnulíf og það er fimm manna hópur sem er úr atvinnulífinu.
Samtök atvinnulífsins og iðnaðarins eru þar inni og síðan fólk úr atvinnulífinu annars staðar og síðan hér í ráðuneytinu þar sem að við erum að reyna að sjá hvar við getum sótt fram, hvar getum við tryggt hagsmuni okkar enn betur og ég hlakka til að fá niðurstöður hópsins, væntanlega í lok janúar eða byrjun febrúar. Þetta erum við að gera en við þurfum líka að sjá, við erum að treysta áfram tengslin við Bandaríkin.
Þau eru mjög, ég myndi lýsa þeim akkúrat núna, eru þau mjög góð og sterk og styrk. En við þurfum líka að gera og erum að fylgjast með og ég er í ágætis samtali við minn vin og kollega, norska utanríkisráðherrann, Espen Barth Eide. Hann heyrir náttúrlega að norskt atvinnulíf, hefur óskað eftir því eftir að það fékk sína álitsgerð að skoða hvort að Noregur getur orðið aðili að tollabandalaginu.
Við erum að sjá mikið rót í Bretlandi. Breski forsætisráðherrann dregur eðlilega fram að Íhaldsflokkurinn breski samdi hörmulega, þjóðin ákvað út en samdi síðan hörmulega fyrir breskt samfélag þannig að hagvöxtur hefur farið niður um einhver 7-8%. Það fór ekkert meira inn í breska heilbrigðiskerfið þrátt fyrir að það væru loforð um það að það væru einhverjar 350 milljónir punda á viku sem ættu að bætast inn í. Allt þetta bara sveik systurflokkur Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins.“
Þetta var bara sama lýðskrumið og var beitt hér.
„Já, já, bara sama lýðskrumið þannig að það er áhugavert að fylgjast með umræðunni í Bretlandi. Sumir vilja ganga aftur inn en ég sé það alveg að Andy Burnham, hann er að leita leiða til þess einmitt að treysta sambandið við Evrópusambandið þannig að það auki samkeppnishæfni líka Breta. Það verði betra varðandi námsmenn, flæði á milli landanna, og síðan meiri samvinna á sviði varnar- og öryggismála, meiri samvinna á sviði viðskipta og þetta er eitthvað s samtal sem er að fara af stað. Það sama gildir um Kanada, okkar vinaþjóð. Við höfum átt í mjög góðum samskiptum við, við Kanada núna á þessum tveimur árum sem ég hef verið hér og bara aukist bæði á sviði varnarmála og síðan á sviði utanríkismála og ætlum að halda því áfram. Kanada er líka að þreifa sig áfram með Evrópusambandinu, hvernig þau geta styrkt tengslin og það sama gildir með Noreg. Og ég ætla ekkert að láta Ísland sitja bara átekta.“
Við getum ekki setið eftir og horft á.
„Nei, nei, við getum ekki setið eftir og horft á. Við vinnum bara út frá því að við erum ekki að fara að vera aðilar að Evrópusambandinu, allavega ekki bili. En við þurfum að finna þá aðrar leiðir til þess að, að treysta samböndin við þennan mikilvæga markað okkar og nánu vinaþjóðir. Og meðan erum við líka að gera annað, eitt útilokar ekki annað, og ég hlakka líka til að sjá íslenskt atvinnulíf og fyrirtæki nýta þau sóknarfæri sem að eru að koma núna í gegnum fríverslunarsamning við Indland, í gegnum fríverslunarsamning við Víetnam.
Það eru stórkostleg tækifæri á báðum sviðum varðandi bæði sjávarafurðir en ekki síður okkar þekkingu á sviði jarðhitamála. Í Víetnam eru 250 til 300 staðir sem menn segja að sé hægt að virkja fyrir jarðhita og það er eitthvað sem að við Íslendingar viljum vonandi taka þátt í og auðveldar okkur aðkomu í gegnum fríverslunarsamning við Víetnam. Svo erum við að styrkja tengslin við, við Kína. Það er alveg ljóst, Kína og Ísland, við erum ekki á sama svæði hvað viðkemur pólitík, almennri pólitík og svona stjórnmálaumhverfi.
En við erum engu að síður með góð tengsl við Kína á sviði viðskipta og sviði samskipta á menningarlegum forsendum og ég vona eftir heimsókn mína til Kína um daginn að þetta verði til þess að, að styrkja enn frekar sambandið við, Kína. Þannig að það er margt í gangi, allt í þágu almennings og fyrirtækjanna í landinu.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗