Sautján skipverjar í sjávarháska

Sjávarháskinn er austur af landinu.

Sjávarháskinn er austur af landinu.

Fiskveiðiskipið sem er í vanda á Héraðsdjúpi um 100 kílómetra austur af Glettingi er íslenskt. Sautján skipverjar voru um borð en samkvæmt heimildum mbl.is er um sjávarháska að ræða. 

Enn eru nokkrar klukkustundir í að björg berist. 

Sjóbjörgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út. 

TF-SIF, eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, er á leið á vettvang en er ekki enn komin á staðinn.

Slæmt veður á vettvangi 

Þá eru þrjú björgunarskip frá Raufarhöfn, Vopnafirði og Neskaupstað á leið á svæðið en talsverður tími er í að þau komist að þeim stað þar sem síðast var vitað af skipinu.

Minnst fimm fiskveiðiskip eru á leið á vettvang.

Slæmt veður er á slysstað eða 13-20 metra vindhraði á sekúndu, en ölduhæð um fjórir til fimm metrar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab