Þurftu að loka vegna mannlegra mistaka

Dissý Gísladóttir, eigandi ORG, fyrir utan nýju verslunina á fyrstu hæð Kringlunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mannleg mistök urðu þess valdandi að loka þurfti versluninni ORG á annarri hæð Kringlunnar í byrjun mánaðarins.

„Þetta var bara klúður hjá einhverjum á efri hæðinni sem leiddi til þess að það kom kalt vatn niður,“ segir Dissý Gísladóttir, eigandi ORG, en fyrir ofan á þriðju hæðinni er mathöllin Kúmen.

Óhappið uppgötvaðist ekki fyrr en morguninn eftir, 3. nóvember, þegar vatn hafði borist alla leið niður á fyrstu hæð í verslun Byggt og búið. Tjónið þar var samt minniháttar, segir Dissý.

Vatnstjónið í ORG var aftur á móti mikið, aðallega á lofti og gólfi. Vörurnar sjálfar sluppu að mestu.

Loka þurfti versluninni í þrjár vikur, eða þangað til hún opnaði aftur fyrir skömmu á nýjum stað á fyrstu hæð Kringlunnar til móts við Hrím. Eftir að plássið á annarri hæð hefur verið lagfært er þó miðað við að ORG snúi aftur þangað.

„Að sjálfsögðu hafði þetta veruleg áhrif. Auðvitað er þetta högg, það segir sig sjálft,“ segir Dissý, spurð út í áhrif lokunarinnar á verslunina, sem hefur verið starfrækt í Kringlunni frá árinu 2015.

„Við horfum samt bjartsýn fram á veginn,“ bætir hún við.

Verslunin var á annarri hæð Kringlunnar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab