Sautján skipverjar í sjávarháska
Fiskveiðiskipið sem er í vanda á Héraðsdjúpi um 100 kílómetra austur af Glettingi er íslenskt. Sautján skipverjar voru um borð en samkvæmt heimildum mbl.is er um sjávarháska að ræða.
Enn eru nokkrar klukkustundir í að björg berist.
Sjóbjörgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út.
TF-SIF, eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, er á leið á vettvang en er ekki enn komin á staðinn.
Slæmt veður á vettvangi
Þá eru þrjú björgunarskip frá Raufarhöfn, Vopnafirði og Neskaupstað á leið á svæðið en talsverður tími er í að þau komist að þeim stað þar sem síðast var vitað af skipinu.
Minnst fimm fiskveiðiskip eru á leið á vettvang.
Slæmt veður er á slysstað eða 13-20 metra vindhraði á sekúndu, en ölduhæð um fjórir til fimm metrar.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗