Eyddi um 4,4 tonnum af eitruðu sprengiefni
Brak þeyttist upp í loftið við sprenginguna og mikill reykjarmökkur steig upp fyrir trjátoppana. AFP
Bandaríkjaher eyddi í dag um 4,4 tonnum af blýasíði með stýrðri sprengingu í skotfæraverksmiðju hersins í Middletown í Iowa.
Herinn sagði sprengiefnið of óstöðugt til að hægt væri að flytja það á öruggari stað. Íbúar voru hvattir til að yfirgefa svæðið í varúðarskyni vegna hættu á að eitrað blýryk bærist út í andrúmsloftið.
Efnið hafði verið geymt í 68 tunnum í verksmiðjunni í meira en 15 ár. Að sögn yfirvalda hafði það brotnað niður í geymslu og hætta var á að það spryngi af sjálfu sér. Í tunnunum voru allar birgðir Bandaríkjanna af blýasíði sem þannig var ástatt um.
Brak þeyttist upp í loftið við sprenginguna og mikill reykjarmökkur steig upp fyrir trjátoppana. Blaðamaður The New York Times sagði sprenginguna hafa heyrst í um 16 kílómetra fjarlægð.
Blý greindist ekki í fyrstu sýnum
Lee Zeldin, forstjóri Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna, sagði í samtali við CNN að blý hefði enn ekki greinst í sýnum eftir sprenginguna.
Adam Telle, settur ráðherra málefna bandaríska landhersins, sagði aðgerðina hafa heppnast afar vel. Hann skrifaði á X að fylgst væri náið með mælitækjum Umhverfisstofnunar á svæðinu og ekkert þeirra hefði enn sýnt mæligildi yfir 0,0.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á Truth Social að fyrstu fregnir frá Iowa bentu til þess að mengunarvarnir hersins hefðu skilað mun betri árangri en búist var við.
Sprengingin átti upphaflega að fara fram 20. nóvember en var frestað um þrjá daga. Trump setti aðgerðina síðan í bið meðan beðið var úrskurðar dómstóls og samþykkis Robs Sands, verðandi ríkisstjóra Iowa.
Úrskurður dómstólsins á mánudagskvöld gerði hernum kleift að halda aðgerðinni áfram. Sand sagði sama dag að stjórnvöld ættu að taka ákvörðunina á grundvelli upplýsinga frá sérfræðingunum sem þau hefðu fengið til verksins mánuðum áður.
Herinn birti í dag tvö kort af mögulegri dreifingu blýryks. Annað sýndi að ryk gæti borist rúmlega 120 kílómetra til suðvesturs frá sprengistað. AFP
Umfangsmiklar mengunarvarnir
Aaron Teller ofursti, sem stýrði sprengjusérfræðingunum við aðgerðina, sagði að blýasíði hefði síðast verið eytt í stórum stíl árið 1977. Þá var um 3,2 tonnum af efninu eytt með sprengingu undir berum himni í Colorado. Um 75% blýagnanna urðu eftir á sprengistað þótt engar sérstakar mengunarvarnir hefðu verið viðhafðar, að sögn Tellers.
Fyrir sprenginguna í Iowa sagði Teller að umfangsmikil varnarvirki hefðu verið reist umhverfis geymslubyrgin tvö. Þar voru jarðvegsfylltar hindranir sem náðu vel upp fyrir þök byrgjanna og op sem átti að beina efni frá sprengingunni út á óbyggðan hluta verksmiðjusvæðisins. Vatnsgeymar og froða voru einnig notuð til að draga úr áhrifum sprengingarinnar og takmarka dreifingu blýagna.
Kort sýndu mögulega dreifingu blýryks
Herinn birti í dag tvö kort af mögulegri dreifingu blýryks. Annað sýndi að ryk gæti borist rúmlega 120 kílómetra til suðvesturs frá sprengistað. Hitt sýndi minna svæði þar sem rykið gæti sest á yfirborð. Kortin byggðust á reiknilíkönum um dreifingu ryksins.
Fólki var ráðlagt að halda sig fjarri merktum svæðum eða vera innandyra með lokaða glugga og dyr. Sérstaklega var tekið fram að börn yngri en sex ára væru viðkvæm fyrir blýmengun.
Bandaríska almannavarnastofnunin aðstoðaði íbúa Middletown og næsta nágrennis við að yfirgefa svæðið tímabundið. Herinn sagði að haft yrði samband símleiðis við þá sem hefðu farið þegar óhætt væri að snúa heim.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

