Hátíðarnar tilfinningaþrunginn tími fyrir Pitt

Brad Pitt og Ines de Ramon á kvikmyndahátíð á Spáni í september. Parið hlakkar til að eiga notalegar stundir saman yfir hátíðarnar. AFP/Ander Gillenea

Bandaríski leikarinn Brad Pitt hlakkar til að verja jólunum í faðmi kærustu sinnar, skartgripahönnuðarins Ines de Ramon, eftir annasamt ár í Hollywood.

„Brad ætlar að verja þakkargjörðarhátíðinni og jólunum með Ines, fjölskyldu og vinum. Árið hefur verið afar krefjandi í vinnunni og hann hlakkar til að slaka aðeins á,“ segir heimildarmaður nákominn leikaranum í samtali við People.

Pitt, sem er 62 ára, og de Ramon, sem er 33 ára, hafa verið par frá því í nóvember árið 2022. Þau hafa í auknum mæli komið fram opinberlega saman undanfarna mánuði, meðal annars á kvikmyndafrumsýningum og tónleikum.

Brad Pitt og Ines de Ramon hafa verið saman í fjögur ár og ælta að ferðast saman yfir hátíðarnar. AFP/Jason Kempin

Þakklátur fyrir að hafa hana í lífi sínu

Samkvæmt heimildarmanninum hyggst parið einnig ferðast saman yfir hátíðarnar áður en vinnan tekur aftur við hjá leikaranum á nýju ári, en hann er þegar með nokkur verkefni á döfinni.

Pitt og de Ramon eyddu einnig síðustu jólum saman. Heimildarmaður People sagði þá að hátíðarnar væru jafnan tilfinningaþrunginn tími fyrir leikarann en að hann væri afar þakklátur fyrir að hafa de Ramon í lífi sínu.

Pitt á sex börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Angelinu Jolie. Þau slitu samvistum árið 2016 eftir tólf ára samband en gengið var endanlega frá skilnaði þeirra í desember 2024.

Samband Pitt við börn sín hefur verið mikið til umfjöllunar undanfarin ár, en þau hafa hvert á fætur öðru kosið að láta föðurnafnið Pitt víkja úr nöfnum sínum.

People

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab