Forráðamenn United brjálaðir út í Howard Webb eftir helgina

Manchester United er afar ósátt við Howard Webb, yfirmann dómaramála í ensku úrvalsdeildinni, eftir að rauða spjaldið sem Leny Yoro fékk gegn Liverpool var fellt úr gildi.

Yoro var rekinn af velli snemma leiks á Anfield á sunnudaginn þegar hann braut á Alexander Isak. United tapaði leiknum 4-0 í fyrsta leik Mauricio Pochettino við stjórnvölinn.

United áfrýjaði rauða spjaldinu og fékk það fellt úr gildi af óháðri nefnd enska knattspyrnusambandsins.

Nefndin taldi Yoro ekki hafa komið í veg fyrir augljóst marktækifæri þar sem markvörðurinn Senne Lammens hefði getað náð boltanum á undan Isak.

Webb hafði hins vegar varið ákvörðun dómarans í sjónvarpsþættinum Mic'd Up. „Ég held að flestir myndu telja þetta rétta ákvörðun,“ sagði Webb.

Forráðamenn United telja túlkun Webb ranga og hyggjast taka málið upp við úrvalsdeildina og dómarasamtökin.

Pochettino gagnrýndi einnig VAR harðlega. „Dómarinn getur gert mistök, en ef við erum með VAR, hvað voru þeir þá að gera?“ sagði Argentínumaðurinn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab