Biðja farþega flugs frá Íslandi afsökunar
Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 19:30
Eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og vegna nýrra reglna á Schengen svæðinu hefur vegabréfaeftirlit verið hert til muna á undanförnum árum. Mynd/Wikipedia
Forsvarsmenn flugvallarins í Edinborg hafa beðið farþega flugs frá Keflavík afsökunar eftir mistök við móttöku. Farþegarnir voru sendir í gegnum vitlaust hlið og ekki athugað með vegabréf þeirra. Þurfti að smala þeim saman aftur.
Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.
Farþegar í flugi EasyJet frá Keflavík til Edinborgar á laugardag hafa verið beðnir afsökunar af forsvarsmönnum Edinborgarflugvallar. Það er vegna hvumleiðra mistaka við móttöku þeirra.
Eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og vegna nýrra reglna á Schengen svæðinu hefur vegabréfaeftirlit verið hert til muna á undanförnum árum. En í þessu tiltekna flugi voru gerð mistök og landamæraverðir hleyptu farþegunum í gegn án eftirlits, líkt og um innanlandsfarþega væri að ræða.
Vegna þessa komust farþegarnir meðal annars ekki að farangursbeltinu til þess að sækja töskurnar sínar.
Þurftu því landamæraverðir að hafa upp á farþegunum og smala þeim aftur að móttökunni til þess að hægt væri að sinna vegabréfaeftirlitinu lögum samkvæmt.
„Starfsfólk flugvallarins brást strax við þegar það varð vart við málið og vann í samstarfi við breska landamæraeftirlitið að því að fylgja farþegum aftur á svæði fyrir komur frá útlöndum, þar sem viðeigandi eftirlit fór fram,“ segir í tilkynningu Edinborgarflugvallar. „Viðkomandi þjónustuaðili á jörðu niðri vinnur að úrlausn málsins og verður skýrsla þar að lútandi send samgönguráðuneytinu.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗