Stefnum hátt á Álftanesi
Álftanes hefur farið vel af stað í úrvalsdeild karla í körfubolta í vetur. Sigurður Pétursson leikmaður liðsins og landsliðsmaður Íslands telur að liðið geti keppt um alla titla sem í boði eru.
Álftanes hefur unnið sex af sjö leikjum sínum og aðeins tapað einum gegn KR. Liðið hefur þurft að glíma við meiðsli að undanförnu en sýndi styrk sinn í síðasta leik gegn Grindavík þrátt fyrir að vera án þriggja leikmanna.
„Við komum inn með stæl og erum búnir að vinna flesta leiki. Við töpuðum einum gegn KR en erum kannski að díla við svolítil meiðsli núna, en við erum með gríðarlega sterkt lið.
Það vantaði þrjá leikmenn hjá okkur í síðasta leik en við sýndum bara góðan styrk og unnum hann,“ sagði Sigurður Pétursson í samtali við mbl.is.
Hann segir markmiðið skýrt og liðið ætla sér að vera í toppbaráttunni þegar úrslitin ráðast á næsta ári.
„Það er planið að vera með í baráttunni til enda. Við vitum líka að það er ekkert lið sem vinnur titla í nóvember. Við erum kannski á réttri leið og ætlum að halda áfram að þróa liðið og vinna í okkar leik,“ sagði Sigurður við mbl.is.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗