Tveir fá 8,5 milljónir
Innlent | mbl | 25.11.2026 | 19:08
Einn var með hinn alíslenska 3. vinning og fær hann fyrir það rúmlega 3,7 milljónir króna. mbl.is/Karítas
Fyrsti vinningur gekk ekki út í Vikinglotto að þessu sinni en tveir miðaeigendur skiptu með sér 2. vinningi og fær hvor þeirra rúmar 8,5 milljónir króna í sinn hlut.
Annar miðinn var keyptur í Danmörku og hinn í Noregi.
Einn var með hinn alíslenska 3. vinning og fær hann fyrir það rúmlega 3,7 milljónir króna. Miðinn er í áskrift.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en sex voru með 2. vinninginn og fá 125 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Krambúðinni, Borgarbraut 1, Akureyri, á lotto.is og fjórir eru í áskrift.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗