SR á toppnum eftir sannfærandi sigur
SR lagði Fjölni að velli, 7:3, í Toppdeild karla í íshokkí í Laugardalnum í gærkvöldi. Með sigrinum tilltu SR-ingar sér í efsta sætið í Toppdeild karla með 20 stig eftir 9 leiki en SA er í öðru sæti með 19 stig eftir jafnmarga leiki.
Aðeins er farið að draga í sundur með SR og Fjölni eftir harða baráttu í upphafi tímabilsins en Fjölnir er í þriðja sæti með 12 stig eftir 10 leiki. Á botninum situr U20 landslið Íslands án stiga eftir 6 leiki.
Fjölnir komst 1:0 yfir snemma í fyrstu lotu með marki Jere Koikkalainen en SR-ingar svöruðu eftir aðeins 36 sekúndur með marki Péturs Maack.
Heimamenn voru mikið sterkari í fyrstu lotu og skoruðu þrjú mörk til viðbótar en þar voru á ferðinni þeir Sölvi Atlason, Egill Þormóðsson og Níels Hafsteinsson.
Gestirnir úr Grafarvogi voru ekki af baki dottnir og sóttu í sig veðrið í annarri lotu. Þrátt fyrir mörg færi náðu þeir pökknum aldrei framhjá vörn eða markverði SR en þar stóð Helgi Ívarsson sem nýlega gekk til liðs við félagið og spilaði sinn fyrsta leik.
Heimamenn nýttu yfirtölu í byrjun leiks og skoraði Egill Þormóðsson sitt annað mark. Alex Sveinsson bætti svo í undir lok leikhlutans og staðan orðin 6:1 og útlitið frekar dökkt fyrir Fjölni.
Áfram héldu Fjölnismenn að pressa í þriðja leikhluta og skilaði það mörkum frá Viggó Hlynssyni og Sturlu Snorrasyni í upphafi leikhlutans og enn eigðu gestirnir von.
Egill Þormóðsson slökkti svo endanlega í þeirri von með sínu þriðja marki á 7. mínútu. Ekki tókst Fjölni að nýta sér refsimínútur SR-inga þótt þeir hafi á tíma verið 5 á móti 3 á ísnum og þar við sat og lokatölur 7:3.
Næstu leikir í Toppdeild karla eru 4. og 5. desember í Skautahöllinni í Laugardal þegar SR og U20 landsliðið mætast.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

