Yfirgefur Vesturbæinn
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson verður ekki áfram í herbúðum KR á næstu leiktíð í Bestu deild karla í fótbolta. Þetta tilkynnti KR á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Gyrðir Hrafn gekk í raðir KR frá FH í sumarglugganum 2024. Fyrri hluta tímabilsins í ár lék Gyrðir í sex deildarleikjum og einum bikarleik með KR. Hann lék á láni hjá Þór á Akureyri síðari hluta tímabils í ár og átti stóran þátt í að liðinu tókst að halda sæti sínu í deildinni.
Gyrðir sem er alinn upp í Vesturbænum hóf meistaraflokksferilinn hjá Leikni árið 2019 þar sem hann lék í fjögur tímabil áður en hann fór í Hafnarfjörðinn.
„Gyrðir Hrafn er uppalinn KR-ingur og hefur leikið 47 leiki fyrir meistaraflokk KR á sínum tíma hjá félaginu. Við þökkum Gyrði kærlega fyrir góð ár í svart-hvítu og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi!," segir í tilkynningu KR.
Óljóst hvar hann spilar á næstu leiktíð
Gyrðir hefur verið meðal annars verið orðaður við Þór, Þrótt og Keflavík að undanförnu.
„Við erum búnir að spjalla nokkrum sinnum við Gyrði, erum mjög spenntir fyrir honum, sjáum hann geta tekið mjög stórt hlutverk hjá okkur.
Hann er leiðtogatýpa sem við erum að leita að fyrir liðið og vonandi gengur það vel," sagði Jónas Guðni Sævarsson yfirmaður knattspyrnumála hjá Keflavík í viðtali við fótbolta.net á mánudag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/54/1695454.jpg)