Heiðar, Birgir Tjörvi og Sigurður Kári mættu í Smáralind

Björn Jón Bragason lögfræðingur og sagnfræðingur fagnaði útkomu Veraldarvafsturs í Pennanum Eymundsson í Smáralind á dögunum. Í bókinni fléttar hann saman sögur tveggja kynslóða; Sveins B. Valfells og Sveins Valfells yngri. Saga þeirra er um leið kafli úr íslenskri viðskiptasögu og varpar ljósi á þær miklu þjóðfélagsbreytingar sem urðu á íslensku samfélagi og athafnalífi á tuttugustu öld.
Björn Jón, sem kennir við Verslunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík hefur skrifað fjölmargar fræðibækur, ævisögur og skrifað greinar.

Fjölskylda, vinir og fólk úr viðskiptalífinu fjölmenntu til að fagna útgáfunni.

Lögfræðingurinn og rithöfundurinn Birgir Tjörvi Pétursson mætti í hófið. Það gerði einnig Finnur Oddsson forstjóri Haga, Jón Ólafur Halldórsson formaður Samtaka atvinnulífsins og Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Nanna Helga Valfells fjárfestir. Á svæðinu voru hjónin Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og Halla Oddný Magnúsdóttir rithöfundur og fjölmiðlakona. Heiðar Guðjónsson stjórnarformaður Íslandsbanka, mætti einnig ásamt eiginkonu sinni Sigríði Sól Björnsdóttur viðskiptafræðingi.
Eins og sjá má á ljósmyndunum var stemning á mannskapnum!
Gyða Magnúsdóttir, Ragnheiður María Benediktsdóttir og Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Helga Gerður Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Finnur Oddsson forstjóri Haga og Jón Ólafur Halldórsson formaður Samtaka atvinnulífsins. Ljósmynd/Aðsend
Jónas Sigurgeirsson, Heiðar Guðjónsson, Sigríður Sól Björnsdóttir og Sigurður Kári Kristjánsson í góðum félagsskap. Ljósmynd/Aðsend
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗