Már segir þetta vera betri lausn en að takmarka lánstíma verðtryggðra lán
Már Wolfgang Mixa prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands færir fyrir því rök í Facebook-pistli, sem vakið hefur nokkra athygli, að það sé heppilegri lausn, til að auka stöðugleika á húsnæðismarkaði, að gera þær breytingar á verðtryggðum húsnæðislánum að tengja þau við vísitölu íbúðaverðs, í stað vísitölu neysluverðs, fremur en að setja takmarkanir á hámarks lánstíma.
Már vísar þar til áforma Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra um að leggja fram frumvarp á Alþingi til breytinga á lögum um fasteignalán til neytenda. Á frumvarpið að snúast einkum um að hámarkstími lánstími á verðtryggðum húsnæðislánum verði hér eftir 25 ár. Daði segir markmiðið með þessu vera að draga úr vægi verðtryggingar.
Seðlabankinn hefur gert athugasemdir við frumvarpið meðal annars á þeim forsendum að það sé ekki heppilegt að leggja það fram núna eins og staðan er á húsnæðismarkaði, með auknu framboði á húsnæði til sölu. Vísir ræddi við Daða í gær og sagði hann meðal annars að eftir hrunið 2008 hafi komið í ljós að þegar íbúðaverð stendur í stað eða lækkar að raunvirði étist eigið fé fólks upp, án þess að það hafi gert nokkuð rangt. Már segir að þetta sé alveg rétt.
Már víkur síðan að spurningu Vísis til Daða um að miða verðbætur á verðtryggðum lánum við vísitölu íbúðaverðs í stað vísitölu neysluverðs:
„Hann svaraði að það jafngilti því að afnema verðtrygginguna, því lánveitandinn fengi þá ekki endilega til baka sama kaupmátt og hann lánaði. Ef þetta er rétt, þá er ég fylgjandi afnámi verðtryggðra lána. Ég er það reyndar ekki, en svarið segir ýmislegt um hvernig áhættunni er skipt. Vandinn sem ráðherrann lýsir er að lántakinn tapar eigin fé sínu. Leiðin sem hann hafnar er einmitt sú sem myndi verja lántakann fyrir því.“
Galli
Már segist oft hafa bent á þennan galla á verðtryggðum lánum og áður hafa lagt til að tengja þau frekar við vísitölu íbúðaverðs og það hafi raunar fleiri gert:
„Lánveitendur lána ekki fyrir öllu kaupverðinu. Kaupandinn leggur sjálfur fram stóran hluta þess, og þótt íbúðaverð lækki um 10 til 15% stendur veðið enn vel undir láninu. Bankinn þarf ekki að afskrifa krónu. Staða lántakans er allt önnur.“
„Segjum að íbúð kosti 60 milljónir og lánið sé 48 milljónir, svo eigið fé er 12 milljónir. Íbúðaverð lækkar um 15% og á sama tíma er 5% verðbólga. Þá er íbúðin komin í 51 milljón. Ef lánið er tengt neysluverði er það komið í 50,4 milljónir og eftir standa 600 þúsund krónur af þeim 12 milljónum sem viðkomandi átti. Hefði lánið fylgt íbúðaverði væri það 40,8 milljónir og eigið féð enn 10,2 milljónir. Lántakinn hefði tapað 15% eins og íbúðin, en ekki nær öllu sínu. Bankinn ætti eftir sem áður tæplega 41 milljónar kröfu með 51 milljónar veð á bak við sig.“
Már minnir á að fordæmi séu fyrir því, til að mynda eftir hrunið, að fasteignaverð lækki og nefnir mörg dæmi um slíkt erlendis frá og segir að þar sé um að ræða bæði dæmi um lækkun á nafnverði og lækkun á raunverði. Það geti því komið lántökum til góða að verðtryggð fasteignalán þeirra séu tengd við vísitölu íbúðaverðs.
„Ráðherrann segir að önnur vísitala hefði áhrif á vaxtakjörin. Það er alls ekki víst að lánin yrðu dýrari. Líklegra er að lánveitendur yrðu varkárari og drægju úr útlánum þegar þeim þætti íbúðaverð komið langt fram úr öllu raunhæfu, því þá bæru þeir sjálfir hluta af áhættunni. Það myndi skapa stöðugleika á íbúðamarkaði, en hann hefur skort hér árum saman. Í dag ber lántakinn nær alla áhættuna af verðfalli, þótt hann sé sá sem síst ræður við hana.“
Pistil Más má nálgast í heild sinni hér fyrir neðan.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗