Rodman dregur sig úr landsliðshópnum - Sögð standa í erfiðum skilnaði
Trinity Rodman, ein helsta stjarna bandaríska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur dregið sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla. Tíðindin berast skömmu eftir að greint var frá sambandsslitum hennar og tennisstjörnunnar Ben Shelton.
Rodman, sem er 24 ára, átti að taka þátt í verkefni bandaríska landsliðsins í Texas en hefur nú þurft að draga sig úr hópnum.
Bandaríska knattspyrnusambandið greindi frá því að hún hefði meiðst lítillega á öxl í úrslitaleik bandarísku kvennadeildarinnar um síðustu helgi.
Þar tapaði lið hennar, Washington Spirit, 2-1 gegn Kansas City Current.
Jaedyn Shaw, leikmaður Gotham FC, hefur verið kölluð inn í hópinn í hennar stað.
Samkvæmt Daily Mail hafa Rodman og Shelton, sem einnig er 24 ára, ákveðið að slíta sambandi sínu eftir rúmlega eitt og hálft ár.
Parið byrjaði saman í mars 2025 en annasamar dagskrár og mikil ferðalög eru sögð hafa gert þeim erfitt fyrir.
Þau eru þó sögð halda góðu sambandi þrátt fyrir sambandsslitin.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗